[Lag: Everybody Hurts -
REM]
[Skap:
Þokkalegt..]
Góðan daginn!
Ákvað að blogga aðeins þar sem að ég er ein heima
Veik og hef voða lítið annað að gera :/
En nóg að segja frá ...
Ég er orðin 15. ára!
Get nú ekki sagt að það sé
mikill munur en það er alltaf gaman að eiga afmæli 
Stelpurnar komu hingað og við borðuðum pizzu,
eftirrétt og nammi og svona í góðu spjalli :* Horfðum á mynd
og svona. Fékk fullt af góðum gjöfum
Takk fyrir
mig :*
Það er nóg að gera í heimalærdómi enda er
vetrarfrí að ganga í garð og talandi um vetrarfrí!
Ég er á leiðinni til Danmerkur með mömmu minni á
morgun
Hlakka mjöög mikið til að fara! ;D Þetta verður samt
stutt ferð en við förum á föstudaginn og komum á mánudaginn
En
það er alveg nóg :] Vona samt að ég verði ekki mjög slöpp en er
búin að vera með einhvern leiðindahósta síðan í síðustu viku og
eitthvað.. Fór ekki í skólann í gær og í dag svo að við komumst í
þessa ferð 
Ég er samt orðin doldið spennt að fá jólin!..
Hlakka svo til að fá Ernu og co. heim og svona
:*
En ég er samt ekki alveg að fíla kuldann en það
fylgir þessu víst..:/ Bara fara að klæða sig í
kuldagallann!
Fór í gærkvöldi með mömmu, ömmu og systkynum
mömmu og litlu frænkum mínum á Fiðlusveitina á Borgarleikhúsinu
Það var bara mjög fínt :] Gunnza var alveg að standa sig
;*
En ætla að fara að horfa á Nágranna 
Vogin (23.sept - 23.okt)
Vonir þínar verða að veruleika og vandamál hverfa með skipulagi og
góðri hvíld þegar þörf er á (hugaðu vel að því yfir helgina
framundan). Þú ert fær um að koma í kring miklum breytingum hjá
fólki sem þú umgengst og reyndar á öllu sem þú kemst í kynni við.
Ef samskipti þín við aðra valda þér áhyggjum skaltu ekki hika við
að einbeita þér að öðru. Annars nýtur þú þæginda og þess að deila
lífsgæðum með ástvinum ef marka má stjörnu þína,
vogina.
- Eyja ;*